til orrustu
Það skeður fátt. Gleðin er þó alveg við völd. En að vera alltaf svona alein heima, venst það?
Þá er enn ein helgin runnin upp. Mikilvægt að halda sönsum þó maður þurfi ekki að mæta í vinnuna. Er ekki kominn tími til að einhver líti í kaffi. Skyldi maður þurfa að bjóða liðinu heim, svo það mæti?
Þá er komið að því. Snjórinn farinn og mér er svo kalt. Gott væri að einhver færi á undan manni undir sæng til að hita allt upp. En hvenær á maður að fara í rúmmið. Hvenær hefst eiginlega þessi háttatími?
Getur einhver sagt mér það?
Já. Kominn laugardagur og ekki mikið að gera annað en vera í sjálfsvorkunn í dag. Snjór yfir öllu og örugglega ekki hægt að komast milli húsa á bifreiðinni. Best að slökkva á símanum og leggjast undir sæng.
Það er nefnilega það sem málið snýst um. Eða hvað?